Með því að skanna Qr kóðann á vörunni þinni eða slá inn númer vörunnar af miðanum, rekur þú lambakjötið til beitarhaganna. Vörur frá sauðfjárbúunum eru seldar í verslunum og veitingarhúsum víðsvegar um landið, en hægt er að þekkja þær á miðanum á vörunni sem er líkt og þessi hér til vinstri.

Um okkur

Verkefnið er samstarfsverkefni Náttúrustofu Vestfjarða, Beint frá Býli, Iceland fish export, Snerpu ehf, Húsavíkurbúsins og Gemlufallsbúsins.

Verkefnið fékk styrk frá Uppbyggingarsjóði Vestfjarða árið 2014 fyrir fyrstu skrefum verkefnisins.

Markmið verkefnisins er að hafa möguleika á því að rekja vöru er hægt að sýna fram á uppruna hennar og hvaða leið hún hefur farið í gegnum virðiskeðjuna. Með þessari aðferð er hægt að velja sér kjöt eftir beitilandi og þá bragðgæðum kjöts, því sýnt hefur fram á að beitiland hefur áhrif á bragðgæðum lambakjöts.